
Frá Grundarfirði. Ljósm. tfk
Míla lýkur lagningu ljósleiðara í Grundarfirði
Framkvæmdum Mílu við lagningu ljósleiðara í Grundarfirði fer nú senn að ljúka. Um 100 tengingar til heimila og fyrirtækja hafa bæst við í ár og eru nú tilbúnar til notkunar. Íbúar geta haft samband við sitt fjarskiptafyrirtæki til að panta þjónustu um ljósleiðara Mílu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Mílu og Grundarfjarðarbæ.