
Aldarfjórðungur frá því Símenntun Vesturlands var stofnuð
Síðdegis í gær var haldið upp á að 25 ár eru liðin frá því Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi, nú Símenntun, var stofnuð. Það var 19. febrúar árið 1999 sem 34 stofnaðilar; sveitarfélög, fyrirtæki og stofnanir á svæðinu, ákváðu að hrynda verkefninu úr vör. Af þessu tilefni var blásið til veislu í nýjum húsakynnum Símenntunar við Smiðjuvelli 18 á Akranesi. Höfuðstöðvar Símenntunar eru þó enn, líkt og í upphafi, við Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi. Guðrún Vala Elísdóttir framkvæmdastjóri Símenntunar stýrði samkomunni og flutti ávarp. Fram kom hjá henni að á þessum 25 árum frá stofnun hafi mjög margt breyst og þróast. Markmiðið sé þó nú sem fyrr að starfsemi Símenntunar efli og styrki íslenskt atvinnulíf og samfélag með endur- og símenntun sem taki mið af þörfum atvinnulífs og einstaklinga hverju sinni. Skal stofnunin sérstaklega huga að þörfum íbúa á Vesturlandi.