Frá grenndarstöðinni í Ólafsvík. Ljósm. Snæfellsbær

Grenndarstöðvum komið fyrir í Snæfellsbæ

Nú er lokið við að setja niður grenndarstöðvar í þéttbýliskjörnunum Ólafsvík, Hellissandi og Rifi í Snæfellsbæ. Á þeim er hægt að skila málmum og gleri til endurvinnslu. Einnig er búið að setja niður tvær grenndarstöðvar á Arnarstapa, við Músaslóð og Jaðar. Settar verða tvær grenndarstöðvar til viðbótar á Arnarstapa og jafnframt verður einni grenndarstöð komið fyrir á Hellnum. Vonast er til að því ljúki fyrir helgi.

Grenndarstöðvum komið fyrir í Snæfellsbæ - Skessuhorn