Miðstigsnemendur í haustferðinni. Ljósm. Heiðarskóli

Nemendur í Heiðarskóla fóru í haustferð

Um miðja síðustu viku fóru nemendur á miðstigi Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit í sína árlegu haustferð. Hópurinn lagði hress af stað um morguninn og farið var í leiki og fleira skemmtilegt við Skátaskálann í Skorradal, einhverjir fundu ber og grillaðar voru pylsur. Að lokum var farið í sund í Borgarnesi.

Nemendur í Heiðarskóla fóru í haustferð - Skessuhorn