
Gangbraut á milli Grundaskóla og íþróttahúss. Ljósm. Grundaskóli
Nýjar gangbrautir og göngustígar við Innnesveg
Akraneskaupstaður er nú í samstarfi við verktaka að ljúka við gerð gangbrauta og göngustíga milli Grundaskóla og Íþróttamiðstöðvarinnar á Jaðarsbökkum. Umferðarljósin eru farin en í stað þeirra eru fjórar gangbrautir sem unnið er að færa upp á palla til að auka umferðaröryggið.