Prís ódýrast

Stærstu fjórar matvörukeðjur landsins lækkuðu verð milli ágústbyrjunar og ágústloka og er lækkunin rakin til þess að lágvöruverðsverslunin Prís var opnuð í Kópavogi í liðnum mánuði. Í tilkynningu frá verðlagseftirliti ASÍ kemur fram að Bónus lækkaði verð á 19% þeirra vara sem til skoðunar voru, Krónan og Nettó á 9% og Hagkaup á 3%. Verð voru athuguð dagana fram að 11. ágúst og dagana fram að 29. ágúst. „Þetta skýrist að hluta af krónu-fyrir-krónu verðstríði við Prís í t.d. mjólkur- og kjötvörum. Ekki er um afmarkaða lækkun að ræða. Vörur í öllum flokkum allra fjögurra verslana lækka. Eini flokkurinn sem var rétt yfir núlli var flokkurinn kjöt og fiskur í Nettó áður en heilsudagar hófust, en hann hafði hækkað um 0,3%.“

Prís ódýrast - Skessuhorn