Fréttir

true

Nemendur í Heiðarskóla fóru í haustferð

Um miðja síðustu viku fóru nemendur á miðstigi Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit í sína árlegu haustferð. Hópurinn lagði hress af stað um morguninn og farið var í leiki og fleira skemmtilegt við Skátaskálann í Skorradal, einhverjir fundu ber og grillaðar voru pylsur. Að lokum var farið í sund í Borgarnesi. Sama dag var haustferð unglingastigs og…Lesa meira

true

Grenndarstöðvum komið fyrir í Snæfellsbæ

Nú er lokið við að setja niður grenndarstöðvar í þéttbýliskjörnunum Ólafsvík, Hellissandi og Rifi í Snæfellsbæ. Á þeim er hægt að skila málmum og gleri til endurvinnslu. Einnig er búið að setja niður tvær grenndarstöðvar á Arnarstapa, við Músaslóð og Jaðar. Settar verða tvær grenndarstöðvar til viðbótar á Arnarstapa og jafnframt verður einni grenndarstöð komið…Lesa meira

true

Nýjar gangbrautir og göngustígar við Innnesveg

Akraneskaupstaður er nú í samstarfi við verktaka að ljúka við gerð gangbrauta og göngustíga milli Grundaskóla og Íþróttamiðstöðvarinnar á Jaðarsbökkum. Umferðarljósin eru farin en í stað þeirra eru fjórar gangbrautir sem unnið er að færa upp á palla til að auka umferðaröryggið. Fram kemur á vef Grundaskóla að í dag er 30 km hámarkshraði á…Lesa meira

true

Naumt tap Skallagríms gegn Árborg

Árborg og Skallagrímur áttust við í lokaumferð 4. deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi og var viðureignin á Jáverk-vellinum á Selfossi. Það var ansi mikið undir í þessum leik hjá báðum liðum. Skallagrímur gat með sigri tryggt sæti sitt í deildinni á meðan lið Árborgar er í harðri toppbaráttu við Ými og um sæti í…Lesa meira

true

Prís ódýrast

Stærstu fjórar matvörukeðjur landsins lækkuðu verð milli ágústbyrjunar og ágústloka og er lækkunin rakin til þess að lágvöruverðsverslunin Prís var opnuð í Kópavogi í liðnum mánuði. Í tilkynningu frá verðlagseftirliti ASÍ kemur fram að Bónus lækkaði verð á 19% þeirra vara sem til skoðunar voru, Krónan og Nettó á 9% og Hagkaup á 3%. Verð…Lesa meira

true

Míla lýkur lagningu ljósleiðara í Grundarfirði

Framkvæmdum Mílu við lagningu ljósleiðara í Grundarfirði fer nú senn að ljúka. Um 100 tengingar til heimila og fyrirtækja hafa bæst við í ár og eru nú tilbúnar til notkunar. Íbúar geta haft samband við sitt fjarskiptafyrirtæki til að panta þjónustu um ljósleiðara Mílu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Mílu og Grundarfjarðarbæ. Með framkvæmdum…Lesa meira

true

Aukning í sölu eldisafurða fyrstu sjö mánuði ársins

Útflutningsverðmæti eldisafurða er komið í 27,3 milljarða króna á fyrstu sjö mánuðum ársins og hefur aldrei verið meira á tilgreindu tímabili. Í krónum talið er aukningin rúmlega 18% frá sama tímabili í fyrra. Vegna lítilsháttar styrkingar á gengi krónunnar á tímabilinu er aukningin í erlendri mynt örlítið meiri, eða rúmlega 19%. Þetta má lesa úr…Lesa meira

true

Eldgosinu lokið

Veðurstofan hefur lýst því yfir að eldgosið norðan við Stóra-Skógfell á Reykjanesi er nú lokið. Engin sjáanleg virkni hefur verið í gígum í um hálfan sólarhring. Eldgosið stóð því yfir í um 14 daga. Landris er hafið að nýju undir Svartsengi. Þetta var þriðja lengsta eldgosið af þeim sex sem hafa orðið á Sundhnúksgígaröðinni frá…Lesa meira

true

Viljayfirlýsing um ríflega 40 prósenta stækkun Höfða á Akranesi

Í gær var skrifað undir viljayfirlýsingu milli heilbrigðisráðuneytisins og sveitarfélaganna Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar um stækkun á hjúkrunarheimilinu Höfða á Akranesi. Stefnt er á að fjölga hjúkrunarrýmum um 29 þannig að þau verði 99 að stækkun lokinni. Viljayfirlýsingin er gerð með fyrirvara um ákvörðun Alþingis um fjárveitingu á fjárlögum og ákvörðun sveitarstjórnanna um fjárveitingar í fjárhagsáætlun…Lesa meira

true

Nýtt líf og nýr áfangi tekinn við

Rætt við Margréti Þorvaldsdóttur kennara í Grundaskóla sem lét af störfum í vor Árið 1989 var Margrét Þorvaldsdóttir ráðin sem kennari í Grundaskóla á Akranesi. Síðan þá, eða í ein 35 ár, hefur hún sinnt margvíslegum störfum við skólann með miklum sóma. Hún hefur verið umsjónarkennari, sérkennari, verkgreinakennari og sinnt stjórnun, svo fátt eitt sé…Lesa meira