
Viljayfirlýsing um ríflega 40 prósenta stækkun Höfða á Akranesi
Í gær var skrifað undir viljayfirlýsingu milli heilbrigðisráðuneytisins og sveitarfélaganna Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar um stækkun á hjúkrunarheimilinu Höfða á Akranesi. Stefnt er á að fjölga hjúkrunarrýmum um 29 þannig að þau verði 99 að stækkun lokinni. Viljayfirlýsingin er gerð með fyrirvara um ákvörðun Alþingis um fjárveitingu á fjárlögum og ákvörðun sveitarstjórnanna um fjárveitingar í fjárhagsáætlun þeirra. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu bera sveitarfélög almennt 15% stofnkostnaðar við slík verkefni á móti 85% framlagi ríkisins. Samkvæmt viljayfirlýsingunni nú er hins vegar ráðgert að breyta þessu ákvæði laganna þannig að 15% framlag sveitarfélaganna falli niður. Áætlað er að hjúkrunarheimilið verði rekið áfram af Akraneskaupstað og Hvalfjarðarsveit.