
Eldgosinu lokið
Veðurstofan hefur lýst því yfir að eldgosið norðan við Stóra-Skógfell á Reykjanesi er nú lokið. Engin sjáanleg virkni hefur verið í gígum í um hálfan sólarhring. Eldgosið stóð því yfir í um 14 daga. Landris er hafið að nýju undir Svartsengi. Þetta var þriðja lengsta eldgosið af þeim sex sem hafa orðið á Sundhnúksgígaröðinni frá því í desember 2023. Gosið sem hófst um miðjan mars stóð í um 54 daga og eldgosið sem hófst í lok maí stóð yfir í um 24 daga.