Fréttir

true

Ljósleiðaravæðing hafin í þéttbýli Snæfellsbæjar

Í þessari viku hófst vinna við lagningu ljósleiðara í þéttbýli Snæfellsbæjar. Í fyrsta áfanga er unnið við ljósleiðara í Rifi, en eftir það verður lagt á Hellissandi og að lokum í Ólafsvík. Á upplýsingasíðu Snæfellsbæjar kemur fram að gert sé ráð fyrir að verkefninu ljúki í síðasta lagi árið 2026. Framkvæmdin er samstarfsverkefni Snæfellsbæjar, Mílu…Lesa meira

true

Íþróttaforritið Abler valið Vaxtarsproti ársins 2024

Fyrirtækið Abler hefur verið valið Vaxtarsproti ársins sem er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis, en velta fyrirtækisins jókst um 109% milli ára. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra nýsköpunarmála afhenti Vaxtarsprotann 2024 í gær við athöfn í Grasagarðinum í Reykjavík. Sprotafyrirtækið Abler þróar hugbúnað sem einfaldar og eflir íþrótta- og tómstundastarf með því að tengja saman iðkendur,…Lesa meira

true

Drónaflug tildrög dægurlags

Hólmarinn Elvar Þór Steinarsson gaf nýverið út lagið Ásýndin og er hægt að finna það á öllum helstu streymisveitum. „Ég var að drekka kaffibollann einn morguninn og sá þá drónaflugs vídeó frá Sumarliða Ásgeirssyni og varð fyrir miklum áhrifum af því myndbandi. Ég lék mér við að taka saman orð og textinn kom svo smám…Lesa meira

true

Sjóvá opnar skrifstofu í Stykkishólmi í næstu viku

Mánudaginn 9. september næstkomandi mun Sjóvá opna skrifstofu í Stykkishólmi, í gamla Búnaðarbankahúsnæðinu við Aðalgötu 10. Sjóvá var áður með skrifstofu í Ólafsvík og er fyrirtækinu mikið í mun að halda úti þjónustu á Snæfellsnesinu. Ráðinn hefur verið til starfa Jón Haukur Hilmarsson sem er kunnugur svæðinu og mun þjóna öllu Snæfellsnesi. „Ég er ættaður…Lesa meira

true

Gunnar Ringsted gefur út safnplötu

Tónlistarmaðurinn Gunnar Ringsted í Borgarnesi hóf ungur sinn tónlistarferil en hann var þrettán ára þegar hann spilaði fyrst opinberlega með sinni fyrstu hljómsveit árið 1966, en sú hét Spacemen. Síðan fylgdu nokkrar hljómsveitir sem Gunnar spilaði með næstu árin. Árið 1973 spilaði Gunnar með hljómsveitinni Ljósbrá í þá heimabæ sínum, Akureyri, og gaf hljómsveitin út…Lesa meira

true

Hefur veitt í Straumunum í 67 ár

„Ég veiði aðallega í vötnum og þeim hef ég „safnað“ nokkuð drjúgt. En ein á er föst hjá mér í veiði á hverju ári; Straumarnir í Hvítá í Borgarfirði,“ segir Friðrik Þór Guðmundsson, kallaður Lilló, í samtali við Skessuhorn. „Í Straumana fer ég gjarnan seinni part ágústmánaðar, þegar bæði er von á laxi og sjóbirtingi.…Lesa meira

true

Gulur september

Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðheilbrigði og sjálfsvígsforvörnum. Á síðastliðnu ári var í fyrsta skipti heill mánuður tileinkaður þessu brýna málefni á Íslandi. Það er von undirbúningshópsins að Gulur september auki meðvitund samfélagsins um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna og sé til merkis um kærleika, aðgát og umhyggju. Haustið er…Lesa meira

true

Stefnir á að opna verslun og veitingasölu á Reykhólum

Árný Huld Haraldsdóttir og Reykhólahreppur hafa undirritað samning þess efnis að hún taki á leigu verslunarhúsnæðið á Reykhólum. Árný Huld mun hefja þar verslunar- og veitingarekstur og er stefnt að því að opna í október. Boðið verður upp á heimilismat í hádeginu, viðburði og helstu nauðsynjavörur verða til sölu í versluninni. Þegar nær dregur verður…Lesa meira

true

Kylfingar yfir 26 þúsund í landinu

Golfíþróttin hér á landi er sífellt að vaxa. Fram kemur í tilkynningu frá Golfsambandi Íslands að þegar nýjustu tölur golfklúbba eru skoðar þá fjölgaði kylfingum um 9% milli ára eða um rúmlega 2.000 kylfinga á öllum aldri. „GSÍ hefur spáð fyrir um 2% fjölgun kylfinga árlega og fer þetta því fram úr björtustu vonum. Kylfingar…Lesa meira

true

Breytingar hafa tekið gildi á húsaleigulögum

Um nýliðin mánaðamót tóku gildi ný lög um breytingar á húsaleigulögum, en markmið þeirra er að bæta réttarstöðu leigjenda og auka húsnæðisöryggi. Með breytingunum er vísitölutenging styttri samninga óheimil, auk þess sem skilyrði eru sett fyrir því að leigjendur eða leigusalar geti farið fram á breytingar á leigufjárhæð. Einnig verður leigusali að kanna hvort leigjandi…Lesa meira