Fréttir

true

Varað við hvassviðri fram eftir degi

Fram yfir hádegi í dag er gul viðvörun í gildi fyrir Breiðafjörð. Þar verður sunnan- og síðar suðvestan 15-23 m/s með vindhiðum að 30-35 m/s. Hvassast er á Snæfellsnesi. „Til að forðast foktjón er fólk er hvatt til að tryggja lausamuni utandyra. Varasamt veður ökutækjum, sem verða óstöðug í vindi,“ segir í aðvörun Veðurstofunnar. Athygli…Lesa meira

true

Á 90 km hraða innan bæjar

Í liðinni viku voru höfð afskipti af 58 ökumönnum í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi vegna of hraðs aksturs. Þar af var einn mældur á um 90 km hraða innanbæjar þar sem hámarkshraði er 50 km/klst. Fimm ökumenn eru grunaðir um að aka undir áhrifum í liðinni viku, tveir undir áhrifum fíkniefna og þrír undir áhrifum…Lesa meira

true

Nóg að gera í Kung Fu vagninum

Matarvagninn Kung Fu hóf starfsemi á Akranesi í lok mars og er staðsettur á Stillholti, á móts við Verslunina Bjarg. Skagamaðurinn Jökull Guðjónsson er eigandi vagnsins og segir hann að vel hafi gengið frá opnun og nóg að gera. „Júlí var líklega rólegasti mánuðurinn en svo fann maður strax mikinn mun eftir verslunarmannahelgina þegar fólk…Lesa meira

true

Sverrismót framundan á Hvanneyri

Sunnudaginn 8. september verður haldið Sverrismót í knattspyrnu á Hvanneyri. Mótið er haldið árlega og er til minningar um Sverri Heiðar Júlíusson íþrótta- og æskulýðsleiðtoga á Hvanneyri. Leikið verður á Sverrisvelli og hefst mótið klukkan 13. Skipt verður í eftirfarandi aldursflokka (miðað við fæðingarár): 9 ára og yngri, 10-14 ára og 15 ára og eldri.…Lesa meira

true

Tóku að sér æðarfugl í fóstur

Kærustuparið Aron Snær Einarsson og Dalrós Líf Richter frá Akranesi eru stoltir fósturforeldrar æðarfugls sem þau hafa haft hjá sér undanfarinn einn og hálfan mánuð. Blaðamaður Skessuhorns hitti á þau á Langasandi í liðinni viku og fékk að heyra söguna og fylgjast með þeim fara út í sjó með fuglinn, sem þau nefna Dúdú, til…Lesa meira

true

Sýndu samstöðu gegn ofbeldi

Í kjölfar vofveiflegra atburða í höfuðborginni þar sem Bryndís Klara Birgisdóttir lést á Landspítalanum í vikunni eftir árás á Menningarnótt mættu nemendur í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í bleiku í skólann í morgun til að sýna samstöðu gegn ofbeldi. Nemendum var síðan safnað á sal skólans og þar var tekin mynd af öllum hópnum. Á…Lesa meira

true

Viðey RE 50 landaði í Grundarfirði

Togarinn Viðey RE 50 kom til hafnar í Grundarfirði í gær. Löndun hófst fljótlega upp úr hádegi og hélt skipið til veiða á ný samdægurs. Alls var skipið með 480 kör í lestinni sem er gróflega áætlað í kringum 144 tonn af afla. Nú er nýtt kvótaár hafið og hefur komum skemmtiferðaskipa fækkað en fiskiskipum…Lesa meira

true

Ólympískar lyftingar á Akranesi

Búið er að stofna lyftingadeild fyrir ólympískar lyftingar undir merkjum Kraftlyftingafélags Akraness. Lyftingadeild Akraness hefur verið skráð hjá Lyftingasambandi Íslands LSÍ og er æfingaaðstaða deildarinnar í húsakynnum Ægis Gym á Akranesi. „Með stofnun deildarinnar bætist í flóru þeirra fjölda íþróttagreina sem hægt er að iðka á Akranesi og leysir þann vanda að núverandi iðkendur í…Lesa meira

true

Tæplega milljón mjólkurlítrar skiptu um eigendur á kvótamarkaði

Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn á mánudaginn, 2. september. Matvælaráðuneytinu bárust 46 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 27. Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 398 kr. fyrir hvern lítra. Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverðið 265 kr./ltr. Fjöldi kauptilboða undir…Lesa meira

true

Strekkingsvindur í dag – hvassast á norðanverðu Snæfellsnesi

Á norðanverðu Snæfellsnesi verða snarpar vindhviður fram eftir degi í dag og síðan aftur í nótt og í fyrramálið. Þá segir í ábendingum Vegagerðarinnar að hlýr vindurinn í SV-áttinni í fyrramálið og framan af morgundeginum verði einkar byljóttur um norðvestanvert landið. Það á ekki síst við um Strandir, Skagafjörð og Eyjafjörð þar sem hviður geta…Lesa meira