Fréttir

true

Sagaði í fingur

Fram kemur í dagbók Lögreglunnar á Vesturlandi að vinnuslys varð í liðinni viku í Borgarnesi þegar einstaklingur sagaði í fingur og hlaut viðkomandi aðhlynningu á heilsugæslustöð. Árekstur tveggja bifreiða varð á þremur stöðum í umdæminu í liðinni viku, nærri Hvalfjarðargöngum og norðan Borgarness, án slysa á fólki í öllum tilvikum en nokkuð tjón urðu á…Lesa meira

true

Styrkir til meistaranema í byggðaþróun

Byggðastofnun auglýsir styrki til meistaranema sem vinna að lokaverkefnum á sviði byggðaþróunar. „Kostur er ef verkefnin hafa skírskotun til byggðaáætlunar. Til úthlutunar er allt að 1.400.000 kr. og stefnt er að því að veita allt að fjóra styrki. Í umsókn skal koma fram greinargóð lýsing á verkefninu, markmiðum þess og hvernig það styður við byggðaþróun.…Lesa meira

true

Forvarnardagur um umferðina haldinn í Menntaskóla Borgarfjarðar

Mikið var lagt í forvarnardag Menntaskóla Borgarfjarðar í dag þar sem fjallað var um hætturnar í umferðinni og hegðun ökumanna. Nokkur erill var um Borgarbrautina í Borgarnesi þar sem íbúar voru að forvitnast um gang mála við skólann. Dagurinn byrjaði á fyrirlestri inni í hátíðarsal Hjálmakletts, þar sem Bjarklind Björk Gunnarsdóttir, sérfræðingur frá Samgöngustofu, fór…Lesa meira

true

Ferð fyrir Snæfellinga um Snæfellsnes

Næstkomandi laugardag fara Snæfellingar á ferðalag um Snæfellsnes. Einnig eru áhugasamir um svæðið, sem staðsettir eru utan þess, velkomnir að slást í hópinn. Lagt verður af stað frá íbúa- og gestastofu Snæfellsness á Breiðabliki klukkan 10.00 að morgni laugardags. Leiðsögn verður í höndum Ragnhildar Sigurðardóttur, sögufylgju og framkvæmdastjóra Svæðisgarðsins Snæfellsness. Snæfellingum verður smalað í langferðabíl…Lesa meira

true

Drífa þrefaldur Evrópumeistari í badminton

Drífa Harðardóttir frá Akranesi náði þeim frábæra árangri að verða þrefaldur Evrópumeistari í badminton á Evrópumótinu í flokki 35 ára og eldri sem fram fór í Belgíu 25. til 31. ágúst síðastliðinn. Drífa keppti í öllum þremur greinunum; einliða- tvíliða- og tvenndarleik, og sigraði í þeim öllum. Á vef Badmintonsambands Íslands kemur fram að í…Lesa meira

true

Töluverð íbúafjölgun er á Vesturlandi

Síðustu níu mánuði fjölgaði íbúum á Suðurlandi mest á landsvísu, eða um 3,2%. Íbúum á Vesturlandi fjölgaði næstmest eða um 2,4%. Íbúum fjölgaði í öllum sveitarfélögum á Vesturlandi á þessu níu mánaða tímabili, utan Eyja- og Miklaholtshrepps þar sem fækkar um þrjá íbúa. Mest hlutfallsleg fjölgun á landsvísu er í Skorradalshreppi þar sem íbúum hefur…Lesa meira

true

Hjörtur fór holu í höggi á Garðavelli

Skagamaðurinn og hinn næstum fimmtugi Hjörtur Júlíus Hjartarson fór á dögunum holu í höggi á Garðavelli á Akranesi. Hjörtur, sem er félagsmaður í Golfklúbbnum Leyni, náði draumahögginu á þriðju holu vallarins og er þar með orðinn félagi í Einherjaklúbbi Íslands. Hjörtur er þriðji kylfingurinn sem fer holu í höggi á Garðavelli í sumar. Sveinbjörn Rögnvaldsson,…Lesa meira

true

Bálhvasst í Grundarfirði – gámur fauk á hús

Suðvestan hvassviðri er nú á Snæfellsnesi og gengur talsvert á í verstu hryðjunum. Gul viðvörun vegna hvassviðris er í gangi. Nú fyrir skömmu fauk gámur sem stóð við raðhús nýbyggingu við Ölkelduveg í Grundarfirði. Valt gámurinn ríflega hálfan hring og hafnaði á gafli nærliggjandi íbúðarhúss. Skemmdir eru í það minnsta á grindverki og á húsinu.…Lesa meira

true

Seinkun verður á flokkunarkerfi sorps á Akranesi fram í nóvember

Í nóvember næstkomandi verður nýtt flokkunarkerfi úrgangs frá heimilum tekið upp hjá Akraneskaupstað, sambærilegt kerfinu sem er á höfuðborgarsvæðinu. Upphaflega stóð til að breytingin yrði nú í september en þar sem tunnur berast ekki í tæka tíð þá seinkar dreifingu á nýjum tunnum og breyting á sorphirðu dregst fram í nóvember. Ákveðið hefur verið að…Lesa meira

true

Leynir landaði gullinu í Eyjum

Íslandsmót golfklúbba 2024 í 2. deild karla í flokki 50 ára og eldri fór fram á Vestmannaeyjavelli 22.-24. ágúst. Golfklúbburinn Leynir frá Akranesi sendi vaska sveit til leiks sem gerði sér lítið fyrir og landaði gullinu við erfiðar aðstæður og hörku keppni. Sveitin var skipuð þeim Pétri Vilbergi Georgssyni, Kristvini Bjarnasyni, Þórði Má Jóhannessyni, Þórði…Lesa meira