Ákveðið hefur verið að kaupa sorpílát frá breska fyrirtækinu Craemer af gerðinni MGBneo. Athygli er vakin á því að stærðir þessara íláta eru aðrar en fram kemur í bæklingi sem dreift var í hús á Akranesi nú í ágústmánuði. Ljósm. Craemer.

Seinkun verður á flokkunarkerfi sorps á Akranesi fram í nóvember

Í nóvember næstkomandi verður nýtt flokkunarkerfi úrgangs frá heimilum tekið upp hjá Akraneskaupstað, sambærilegt kerfinu sem er á höfuðborgarsvæðinu. Upphaflega stóð til að breytingin yrði nú í september en þar sem tunnur berast ekki í tæka tíð þá seinkar dreifingu á nýjum tunnum og breyting á sorphirðu dregst fram í nóvember. Ákveðið hefur verið að keyptar verða tunnur frá Craemer af gerðinni MGBneo og eru stærðir þeirra aðrar en fram kemur í bæklingi sem borinn var í öll hús á Akranesi fyrir nokkrum vikum.

Seinkun verður á flokkunarkerfi sorps á Akranesi fram í nóvember - Skessuhorn