Nemendafélag MB hvatti nemendur og starfsfólk til að mæta í bleiku í dag, líkt og víða er gert í framhaldsskólum um land allt. „Ástæðan var rík og það er aðdáunarvert að sjá hvernig ungt fólk hefur minnt á mikilvægi samstöðu og samhugar og varpað ljósi á allt það góða sem býr í ungu fólki,“ sagði Bragi Þór Svavarsson skólameistari.

Forvarnardagur um umferðina haldinn í Menntaskóla Borgarfjarðar

Mikið var lagt í forvarnardag Menntaskóla Borgarfjarðar í dag þar sem fjallað var um hætturnar í umferðinni og hegðun ökumanna. Nokkur erill var um Borgarbrautina í Borgarnesi þar sem íbúar voru að forvitnast um gang mála við skólann. Dagurinn byrjaði á fyrirlestri inni í hátíðarsal Hjálmakletts, þar sem Bjarklind Björk Gunnarsdóttir, sérfræðingur frá Samgöngustofu, fór yfir ýmis atriði sem tengjast öryggi við akstur. Símanotkun við akstur, þreytu undir stýri og mikilvægi bílbelta. Jón Arnar Sigurþórsson lögreglumaður tók í sama streng en fór einnig yfir hvernig viðbragðsaðilar haga vinnu sinni á slysstað og hversu mikilvægt það er að aðrir ökumenn í umferðinni gefi viðbragðsaðilum forgang, til að tryggja öryggi eins og kostur er. Í lok fyrirlestrar komu tveir starfsmenn Neyðarlínunnar upp á svið, þær Hjördís Garðarsdóttir fræðslustjóri og Sigríður Soffía Jónsdóttir aðstoðarvarðstjóri, til að kynna starfsemina og sátu fyrir svörum spurninga frá nemendum.