Á Búðum. Ljósm. hig

Ferð fyrir Snæfellinga um Snæfellsnes

Næstkomandi laugardag fara Snæfellingar á ferðalag um Snæfellsnes. Einnig eru áhugasamir um svæðið, sem staðsettir eru utan þess, velkomnir að slást í hópinn. Lagt verður af stað frá íbúa- og gestastofu Snæfellsness á Breiðabliki klukkan 10.00 að morgni laugardags. Leiðsögn verður í höndum Ragnhildar Sigurðardóttur, sögufylgju og framkvæmdastjóra Svæðisgarðsins Snæfellsness. Snæfellingum verður smalað í langferðabíl og stoppað á vel völdum stöðum víða á Snæfellsnesi. „Hugmyndin er að fara í ferðalag með Ragnhildi sem er mjög fróð um sögur og áfangastaði á Snæfellsnesi. Hoppa upp í langferðabíl og fara með augum ferðamannsins um heimasvæðið. Það er gaman að fara sama og upplifa saman nýja staði, með nýju hugarfari,“ segir Hlédís Sveinsdóttir, einn skipuleggjenda ferðarinnar í samtali við Skessuhorn.

Ferð fyrir Snæfellinga um Snæfellsnes - Skessuhorn