
Íbúum í Skorradal hefur fjölgað um þriðjung síðastliðna níu mánuði. Ljósm. úr safni.
Töluverð íbúafjölgun er á Vesturlandi
Síðustu níu mánuði fjölgaði íbúum á Suðurlandi mest á landsvísu, eða um 3,2%. Íbúum á Vesturlandi fjölgaði næstmest eða um 2,4%. Íbúum fjölgaði í öllum sveitarfélögum á Vesturlandi á þessu níu mánaða tímabili, utan Eyja- og Miklaholtshrepps þar sem fækkar um þrjá íbúa. Mest hlutfallsleg fjölgun á landsvísu er í Skorradalshreppi þar sem íbúum hefur fjölgað um 19 á tímabilinu sem jafngildir 32,6% á átta mánuðum. Þeir eru nú 78 talsins. Alls búa nú 18.481 á Vesturlandi. Flestir á Akranesi þar sem 8.445 búa og hefur fjölgað um 218 á níu mánuðum. Borgarbyggð er sem fyrr næststærsta sveitarfélagið með 4.410 íbúa.