
Varað við hvassviðri fram eftir degi
Fram yfir hádegi í dag er gul viðvörun í gildi fyrir Breiðafjörð. Þar verður sunnan- og síðar suðvestan 15-23 m/s með vindhiðum að 30-35 m/s. Hvassast er á Snæfellsnesi. „Til að forðast foktjón er fólk er hvatt til að tryggja lausamuni utandyra. Varasamt veður ökutækjum, sem verða óstöðug í vindi,“ segir í aðvörun Veðurstofunnar.
Athygli er vakin á að gul viðvörun er einnig í gildi fyrir allt norðanvert landið, Vestfirði og miðhálendið fram eftir degi í dag.