
Nóg að gera í Kung Fu vagninum
Matarvagninn Kung Fu hóf starfsemi á Akranesi í lok mars og er staðsettur á Stillholti, á móts við Verslunina Bjarg. Skagamaðurinn Jökull Guðjónsson er eigandi vagnsins og segir hann að vel hafi gengið frá opnun og nóg að gera. „Júlí var líklega rólegasti mánuðurinn en svo fann maður strax mikinn mun eftir verslunarmannahelgina þegar fólk var komið í rútínu. Það er auðvitað lítið um ferðamenn hérna og mest Skagamenn sem eru að versla við okkur.“ En hvernig hafa þeir tekið ykkur? „Mjög vel og ég hef ekki heyrt annað en að allir séu mjög ánægðir með tilbreytinguna alla vega. Það er fullt af fínum stöðum hérna en það vantaði kannski að mínu mati asískan veitingastað í átta þúsund manna bæjarfélagi og miðað við viðtökurnar held ég að það sé rétt hjá mér.“