Breytingar hafa tekið gildi á húsaleigulögum

Um nýliðin mánaðamót tóku gildi ný lög um breytingar á húsaleigulögum, en markmið þeirra er að bæta réttarstöðu leigjenda og auka húsnæðisöryggi. Með breytingunum er vísitölutenging styttri samninga óheimil, auk þess sem skilyrði eru sett fyrir því að leigjendur eða leigusalar geti farið fram á breytingar á leigufjárhæð. Einnig verður leigusali að kanna hvort leigjandi ætli að nýta sér forgangsrétt og verður honum óheimilt að segja upp ótímabundnum samningi án ástæðu. Breytingarnar taka til samninga sem gerðir eru eftir 1. september auk samninga sem verða endurnýjaðir eða framlengdir eftir það. Sjá nánar í tilkynningu á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar; hms.is