Friðrik Þór, Lilló, með lax úr Straumunum.

Hefur veitt í Straumunum í 67 ár

„Ég veiði aðallega í vötnum og þeim hef ég „safnað“ nokkuð drjúgt. En ein á er föst hjá mér í veiði á hverju ári; Straumarnir í Hvítá í Borgarfirði,“ segir Friðrik Þór Guðmundsson, kallaður Lilló, í samtali við Skessuhorn. „Í Straumana fer ég gjarnan seinni part ágústmánaðar, þegar bæði er von á laxi og sjóbirtingi. Nær alltaf landar maður þar fiskum, en enginn grætur þó stöku fiskleysi, því náttúran er stórkostleg á þessum stað. Þarna mætast Hvítá, Norðurá og Grímsá og við blasir Baulan, Skessuhornið, Hafnarfjallið og fleiri dásemdir í borgfirskri náttúru.