Fréttir

true

Glæpakviss í Glæpafári

Fimmtudaginn 5. september býðst áhugafólki um glæpasögur og spurningakeppnir að taka þátt í viðburði sem sameinar þetta tvennt, þegar Hið íslenska glæpafélag efnir til laufléttrar en þó skuggalega spennandi spurningakeppni um íslenskar glæpasögur í samstarfi við 21 almenningsbókasafn hringinn í kringum landið. Hér á Vesturlandi verður keppnin haldin á Bókasafni Akraness kl. 16:30 og á…Lesa meira

true

Skagamenn stóðu sig vel í pílunni

Pílufélag Akraness tók þátt í Íslandsmóti félagsliða í pílu um helgina og fór mótið fram með pompi og prakt í aðstöðu Pílukastfélags Reykjavíkur á Tangarhöfða. Gunni Hó komst í átta manna úrslit í einmenningi en féll úr leik eftir hörku viðureign við Hallgrím Egilsson frá Pilukastfélagi Reykjavíkur. Hallgrímur er margreyndur landsliðsmaður og hefur orðið Íslandsmeistari…Lesa meira

true

Nemar hlaða grjótvegg við Hreppslaug

Nemendur í landslagsarkitektúr við LbhÍ á Hvanneyri voru nokkuð ánægðir með handverk sitt þegar blaðamaður Skessuhorns hitti á hópinn ásamt leiðbeinandanum Unnsteini Elíassyni við Hreppslaug í Skorradal. Hleðslan er liður í byggingafræðiáfanga við skólann þar sem nemendur hljóta meðal annars þjálfun í aðferðum við landmótun og gerð skrúðgarða. Notast hefur verið við Hreppslaug til kennslu…Lesa meira

true

Eiga nú sjö ára stöðuafmæli á bílastæðinu

Þessir tveir bílar, af Honda og Peugeot gerð, hafa staðið líkt og yfirgefnir tvíburar á bílastæði við fjölbýlishúsið Garðabraut 2a á Akranesi í hvorki meira né minna en sjö ár. Hefur það vakið furðu að eigendur þeirra kjósa að láta þá eiga sig fremur en að skila þeim til endurvinnslu og fá greitt 30 þúsund…Lesa meira

true

Tveir aðskildir þjóðarleikvangar verða í Laugardal

Óhætt er að segja að í dag hafi verið blásið í lúðra í Laugardalnum í Reykjavík. Þar komu saman forsætisráðherra, mennta- og barnamálaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, borgarstjóri og forsvarsmenn Knattspyrnusambands Íslands og Frjálsíþróttasambands Íslands. Undirrituð var viljayfirlýsing um framtíðaruppbyggingu þjóðarleikvanga fyrir knattspyrnu og frjálsíþróttir í Laugardal. Með yfirlýsingunni er stefnt að uppbyggingu tveggja aðskilinna þjóðarleikvanga…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu gegn KR

KR og ÍA tókust á í 21. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í gær og var viðureignin á Meistaravöllum í Frostaskjólinu. Skagamenn komust yfir í leiknum á tíundu mínútu þegar Viktor Jónsson náði skalla inn fyrir vörn KR á Hinrik Harðarson sem kom boltanum fram hjá Guy Smit, markmanni KR, úr þröngu færi og…Lesa meira

true

Skagakonur með sterkan sigur á ÍBV

ÍBV og ÍA áttust við í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum. Fyrir leik voru heimakonur í 4. sæti með 25 stig en gestirnir í 6. sæti með 23 stig og gátu með sigri komist fyrir ofan ÍBV í töflunni. Það voru frekar erfiðar aðstæður á Hásteinsvelli, rigning…Lesa meira

true

Skallagrímur upp úr fallsæti eftir stórsigur á RB

Skallagrímur tók á móti RB á Skallagrímsvelli á laugardaginn. Um var að ræða næstsíðustu umferð 4. deildar karla í knattspyrnu en liðin voru í tveimur neðstu sætum deildarinnar fyrir leikinn, RB var með 8 stig en Skallagrímur með 14. Heimamenn í Skallagrími voru án tveggja lykilleikmanna sem tóku út leikbann. Markahæsti leikmaðurinn, Snorri Sölvason, var…Lesa meira

true

Ólsarar unnu stórsigur á KFG og halda í vonina

Víkingur Ólafsvík tók á móti KFG í 20. umferð 2. deildar karla í knattspyrnu í gær og var leikurinn á gervigrasvellinum í Ólafsvík. Björn Axel Guðjónsson kom Víkingi yfir eftir um hálftíma leik og á lokamínútu fyrri hálfleiks var staðan orðin 2-0 þegar Ivan Rodrigo Blanco skoraði annað mark heimamanna. Eftir um tíu mínútna leik…Lesa meira

true

Kári tryggði sér sæti í 2. deild með sigri á Magna

Knattspyrnufélag Kára frá Akranesi vann stórsigur á liði Magna frá Grenivík á útivelli á föstudagskvöldið og þeir biðu síðan spenntir í rútunni á heimleið eftir úrslitum úr leik Augnabliks og Árbæjar sem hófst seinna um kvöldið. Jafntefli varð niðurstaðan í þeim leik sem þýddi að Kári gat fagnað af miklum móð sæti sínu í 2.…Lesa meira