Eiga nú sjö ára stöðuafmæli á bílastæðinu

Þessir tveir bílar, af Honda og Peugeot gerð, hafa staðið líkt og yfirgefnir tvíburar á bílastæði við fjölbýlishúsið Garðabraut 2a á Akranesi í hvorki meira né minna en sjö ár. Hefur það vakið furðu að eigendur þeirra kjósa að láta þá eiga sig fremur en að skila þeim til endurvinnslu og fá greitt 30 þúsund króna skilagjald fyrir.

Eiga nú sjö ára stöðuafmæli á bílastæðinu - Skessuhorn