Nemendur að störfum við nýjan vegg. Ljósmyndir: hig

Nemar hlaða grjótvegg við Hreppslaug

Nemendur í landslagsarkitektúr við LbhÍ á Hvanneyri voru nokkuð ánægðir með handverk sitt þegar blaðamaður Skessuhorns hitti á hópinn ásamt leiðbeinandanum Unnsteini Elíassyni við Hreppslaug í Skorradal. Hleðslan er liður í byggingafræðiáfanga við skólann þar sem nemendur hljóta meðal annars þjálfun í aðferðum við landmótun og gerð skrúðgarða. Notast hefur verið við Hreppslaug til kennslu undanfarin þrjú ár og var fyrsti veggurinn hlaðinn við bílastæði laugarinnar en í fyrra og í ár er hlaðið milli laugarinnar og skóglendis ofan við hana. Hópurinn lauk við verkefnið í vikunni sem leið. Hreppslaug í Skorradal er mannvirki sem Minjastofnun friðlýsti árið 2014. Laugin er í eigu Ungmennafélagsins Íslendings og verður hún opin fram eftir hausti. Þar er nýtt laugarhús og aðstaða fyrsta flokks.