Glæpakviss í Glæpafári

Fimmtudaginn 5. september býðst áhugafólki um glæpasögur og spurningakeppnir að taka þátt í viðburði sem sameinar þetta tvennt, þegar Hið íslenska glæpafélag efnir til laufléttrar en þó skuggalega spennandi spurningakeppni um íslenskar glæpasögur í samstarfi við 21 almenningsbókasafn hringinn í kringum landið. Hér á Vesturlandi verður keppnin haldin á Bókasafni Akraness kl. 16:30 og á Héraðsbókasafni Borgarfjarðar í Borgarnesi kl. 17:00.

Glæpakviss í Glæpafári - Skessuhorn