
Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra, Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, Einar Þorsteinsson borgarstjóri, Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ og Freyr Ólafsson formaður Frjálsíþróttasambands Íslands og Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra við undirritun viljayfirlýsingar á Laugardalsvelli í dag. Ljósm. aðsend
Tveir aðskildir þjóðarleikvangar verða í Laugardal
Óhætt er að segja að í dag hafi verið blásið í lúðra í Laugardalnum í Reykjavík. Þar komu saman forsætisráðherra, mennta- og barnamálaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, borgarstjóri og forsvarsmenn Knattspyrnusambands Íslands og Frjálsíþróttasambands Íslands. Undirrituð var viljayfirlýsing um framtíðaruppbyggingu þjóðarleikvanga fyrir knattspyrnu og frjálsíþróttir í Laugardal. Með yfirlýsingunni er stefnt að uppbyggingu tveggja aðskilinna þjóðarleikvanga utanhúss í Laugardal, þar sem þegar er unnið að uppbyggingu þjóðarhallar fyrir innanhússíþróttir.