Gunnar Ringsted sáttur með nýju plötuna, Into the Light. Ljósm. hig

Gunnar Ringsted gefur út safnplötu

Tónlistarmaðurinn Gunnar Ringsted í Borgarnesi hóf ungur sinn tónlistarferil en hann var þrettán ára þegar hann spilaði fyrst opinberlega með sinni fyrstu hljómsveit árið 1966, en sú hét Spacemen. Síðan fylgdu nokkrar hljómsveitir sem Gunnar spilaði með næstu árin. Árið 1973 spilaði Gunnar með hljómsveitinni Ljósbrá í þá heimabæ sínum, Akureyri, og gaf hljómsveitin út tveggja laga plötu. Gunnar flutti til Reykjavíkur, spilaði og tók upp með hinni goðsagnakenndu hljómsveit Roof Tops en hafði stutta viðkomu í hljómsveitinni Náttúru þar á undan. Gunnar gaf nýverið út plötuna Into the Light, 17 laga plötu sem hægt er að finna á öllum helstu streymisveitum landsins og þá um leið heimsins.