Elvar að syngja í einkasamkvæmi. Ljósm. eþs

Drónaflug tildrög dægurlags

Hólmarinn Elvar Þór Steinarsson gaf nýverið út lagið Ásýndin og er hægt að finna það á öllum helstu streymisveitum. „Ég var að drekka kaffibollann einn morguninn og sá þá drónaflugs vídeó frá Sumarliða Ásgeirssyni og varð fyrir miklum áhrifum af því myndbandi. Ég lék mér við að taka saman orð og textinn kom svo smám saman. Umhverfið í Stykkishólmi, eyjarnar og nærumhverfið notaði ég í laginu og er mjög sáttur með útkomuna,“ segir Elvar í samtali við Skessuhorn.

Drónaflug tildrög dægurlags - Skessuhorn