Þræðir á leið í jörðu. Ljósm. Snæfellsbær á FB

Ljósleiðaravæðing hafin í þéttbýli Snæfellsbæjar

Í þessari viku hófst vinna við lagningu ljósleiðara í þéttbýli Snæfellsbæjar. Í fyrsta áfanga er unnið við ljósleiðara í Rifi, en eftir það verður lagt á Hellissandi og að lokum í Ólafsvík. Á upplýsingasíðu Snæfellsbæjar kemur fram að gert sé ráð fyrir að verkefninu ljúki í síðasta lagi árið 2026. Framkvæmdin er samstarfsverkefni Snæfellsbæjar, Mílu og Fjarskiptasjóðs og tengist áformum um að ljúka ljósleiðaravæðingu heimila í þéttbýli, en áður hefur ljósleiðari verið lagður í dreifbýli sveitarfélagsins.

Ljósleiðaravæðing hafin í þéttbýli Snæfellsbæjar - Skessuhorn