
Jón Haukur við útibú Sjóvá í Borgarnesi þar sem hann var í starfsnámi í síðustu viku. Ljósm. hig
Sjóvá opnar skrifstofu í Stykkishólmi í næstu viku
Mánudaginn 9. september næstkomandi mun Sjóvá opna skrifstofu í Stykkishólmi, í gamla Búnaðarbankahúsnæðinu við Aðalgötu 10. Sjóvá var áður með skrifstofu í Ólafsvík og er fyrirtækinu mikið í mun að halda úti þjónustu á Snæfellsnesinu. Ráðinn hefur verið til starfa Jón Haukur Hilmarsson sem er kunnugur svæðinu og mun þjóna öllu Snæfellsnesi.