
Gulur september
Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðheilbrigði og sjálfsvígsforvörnum. Á síðastliðnu ári var í fyrsta skipti heill mánuður tileinkaður þessu brýna málefni á Íslandi. Það er von undirbúningshópsins að Gulur september auki meðvitund samfélagsins um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna og sé til merkis um kærleika, aðgát og umhyggju.