
Það var aldeilis fjörið í knattspyrnuhöllinni Skessunni í Hafnarfirði í gærkvöldi þegar lið ÍH og Kára áttust við í 3. deild karla í knattspyrnu. Það byrjaði strax á þriðju mínútu leiksins þegar Gísli Þröstur Kristjánsson skoraði fyrir ÍH en Sigurður Hrannar Þorsteinsson var snöggur til þegar hann jafnaði metin fyrir Kára aðeins tveimur mínútum síðar.…Lesa meira








