Skammhlaup í FVA á síðasta ári. Ljósm. vaks

525 nemendur hefja nám í FVA í haust

Steinunn Inga Óttarsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, segir í samtali við Skessuhorn að skólinn sé nú að fara að taka á móti 525 nemendum á þessu skólaári; 427 nemendum í dagskóla og 98 nemendum í dreifnámi. „Við erum að fara að taka á móti 120 nýnemum sem koma beint úr 10. bekk en í heildina eru 155 nýir nemendur á öllum brautum skólans. Kennsla hófst 19. ágúst en á nýnemadegi mætti stór hópur fyrrum 10. bekkinga og skoðaði húsakynni og fékk fræðslu um skólann,“ segir Steinunn. Alls eru tæplega 70 manns við störf í FVA en þar af eru um 50 kennarar og í skólanum ríkir góður starfsandi. Litlar breytingar eru á starfsfólki þetta skólaár en einn kennari verður í námsleyfi.

525 nemendur hefja nám í FVA í haust - Skessuhorn