Sigurjón Logi skoraði eitt mark gegn ÍH og fékk einnig rautt spjald undir lok leiksins. Ljósm. vaks

Hasar og þrjú rauð spjöld í jafntefli ÍH og Kára

Það var aldeilis fjörið í knattspyrnuhöllinni Skessunni í Hafnarfirði í gærkvöldi þegar lið ÍH og Kára áttust við í 3. deild karla í knattspyrnu. Það byrjaði strax á þriðju mínútu leiksins þegar Gísli Þröstur Kristjánsson skoraði fyrir ÍH en Sigurður Hrannar Þorsteinsson var snöggur til þegar hann jafnaði metin fyrir Kára aðeins tveimur mínútum síðar. Sigurður Hrannar fékk þá boltann eftir fyrirgjöf Sveins Svavars Hallgrímssonar og skot hans endaði í markinu. Eftir þetta var jafnt á með liðunum en Káramenn ekki alveg á sínum besta degi í fyrri hálfleik. Það kom því ekki á óvart þegar Brynjar Jónasson kom heimamönnum yfir á 40. mínútu og staðan 2-1 ÍH í hag þegar dómarinn flautaði til hálfleiks.

Sigurður Hrannar var aftur á ferðinni í byrjun seinni hálfleiks þegar hann slapp inn fyrir vörn ÍH eftir mistök varnarmanns og kláraði færið sitt vel, staðan 2-2. Korteri fyrir leikslok var markvörður ÍH, Rajko Rajkovic, rekinn af velli þegar hann braut á Sigurjóni Loga fyrir utan teig. Aukaspyrna var dæmd og frekar strangur dómur að vísa Rajko af velli og heimamenn í vondum málum því enginn varamarkvörður var á bekknum. Því þurfti útileikmaður þeirra að standa á milli stanganna það sem eftir lifði leiks og Sigurjón Logi nýtti sér það átta mínútum síðar þegar hann fékk sendingu frá Sigurði Hrannari og lagði boltann í netið. Staðan 2-3 fyrir Kára og allt útlit fyrir sigur Kára, einum fleiri og útileikmaður ÍH í markinu. En aðeins mínútu eftir mark Kára skoraði Gísli Þröstur annað mark sitt og jafnt enn á ný í þessum hörkuleik sem urðu lokatölur leiksins, 3-3. Í aðdraganda marksins meiddist leikmaður Kára á höfði og var leikurinn ekki stöðvaður eins og reglur segja til um. Aron Ýmir Pétursson þjálfari Kára var ekki sáttur við það og spurði dómarann út í málið sem gaf honum rautt spjald fyrir vikið. Þetta var ekki allt búið því á sjöundu mínútu í uppbótartíma misstu þeir Sigurjón Logi og Sigurður Hrannar stjórn á skapi sínu og rifu kjaft við dómara leiksins, Ásmund Þór Sveinsson, sem hafði meira en nóg á könnu sinni í þessum leik. Ásmundur Þór brást við með því að gefa þeim báðum beint rautt spjald og missa þeir því af næsta leik sem fram fer á sunnudaginn. Þá mætir Kári liði Sindra í Akraneshöllinni og hefst viðureignin klukkan 13.

Kári er með átta stiga forskot á Víði og Árbæ sem eru í 2.-3. sæti með 35 stig og aðeins tólf stig í pottinum og ljóst að Kári er líklegast á leið upp í 2. deild. Augnablik er í fjórða sæti með 34 stig og Magni í því fimmta með 30 stig. Deildin er tvískipt og í neðri hlutanum er baráttan einnig ansi hörð. KFK er í sjötta sæti með 22 stig, Elliði er með 20 stig, ÍH 19 stig, Sindri og KV eru í 9.-10. sæti með 18 stig og tvö neðstu liðin eru Vængir Júpiters og Hvíti riddarinn með 17 stig.

Hasar og þrjú rauð spjöld í jafntefli ÍH og Kára - Skessuhorn