
Þemavinna um fjölmenningu fór fram í Grundaskóla á Akranesi í apríl á þessu ári. Ljósm. vaks
Starfsemi að hefjast í grunnskólum á Vesturlandi – Rætt við stjórnendur allra skólanna
Nú líður að hausti og fjölskyldur í landshlutanum eru að komast í fyrri rútínu eftir sumarleyfi og ferðalög. Starfsemi í grunnskólunum á Vesturlandi er að hefjast á ný og eru skólastjórnendur spenntir fyrir komandi vetri. Vel hefur gengið að manna stöður og að vanda eru fjölmörg og áhugaverð verkefni á döfinni í starfi grunnskólanna í landshlutanum. Skessuhorn sló á þráðinn til skólastjóranna á Vesturlandi og ræddi stuttlega við þá um komandi skólaár.