Gary Martin skoraði tvö mörk á móti Haukum og hefur skorað alls sjö mörk í sumar. Ljósm. af

Sætur sigur hjá Víkingi gegn Haukum

Víkingur Ólafsvík og Haukar tókust á í 18. umferð 2. deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi og var leikurinn á Ólafsvíkurvelli. Þegar liðin mættust fyrr í sumar vann Víkingur öruggan 3-0 sigur en fyrir leik munaði aðeins þremur stigum á liðunum í efri hluta deildarinnar. Gary Martin kom Víkingi yfir strax á 2. mínútu en eftir markið voru gestirnir sterkari. Guðmundur Axel Hilmarsson jafnaði metin fyrir Hauka á 25. mínútu og jafnræði var með liðunum eftir það en engin alvöru færi og staðan 1-1 í hálfleik.

Haukar fengu síðan vítaspyrnu í byrjun seinni hálfleiks þegar sóknarmaður Hauka slapp í gegnum vörn Víkings. Stefán Óli Hallgrímsson markvörður tók hann niður í teignum og hlaut gult spjald fyrir. Fyrirliði Hauka, Guðjón Pétur Lýðsson, skoraði af öryggi úr vítinu og staðan 1-2. Aðeins fimm mínútum síðar kom sending inn á vítateig Hauka, markvörður Hauka fór út í teiginn og ætlaði að kýla boltann í burtu. Gary Martin sá við honum og náði skalla að marki sem lak í netið en fékk í leiðinni hnefann í andlitið og þurfti smá aðhlynningu eftir að hafa fengið blóðnasir. Aftur var því jafnt og eftir þetta reyndu bæði lið að ná sigurmarkinu sem kom þegar sjö mínútur voru eftir af rimmunni. Eftir klafs í teignum fékk leikmaður Víkings, Luis Alberto Ocerin, knöttinn og sólaði markmanninn upp úr skónum og lagði boltann í netið. Lokatölur 3-2 Víkingi í vil og sætur og mikilvægur sigur heimamanna í hús. Þeir eru því enn í baráttunni um að komast upp í Lengjudeildina þegar fjórar umferðir eru eftir af mótinu.

Toppbaráttan í deildinni er afar spennandi og spennandi að sjá hvernig fer. Selfoss er í efsta sætinu með 41 stig, Völsungur í öðru sæti með 35 stig og Þróttur Vogum og Víkingur eru í 3.-4. sæti með 32 stig. KFA kemur þar á eftir með 31 stig í fimmta sætinu og ljóst að þessi lið munu berjast um sætin tvö allt til enda þó Selfyssingar séu nánast komnir með annan fótinn upp eftir góða frammistöðu í sumar.

Næsti leikur Víkings er á sunnudaginn á móti Hetti/Hugin á Vilhjálmsvelli á Egilsstöðum og hefst klukkan 14. Það er spurning hvort leikmenn Hattar/Hugins verði búnir að jafna sig eftir skell gærkvöldsins þar sem þeir töpuðu fyrir nágrönnum sínum í KFA, 8-2. En fótboltinn er óútreiknanlegur og allt getur gerst eins og sannaðist í síðustu umferð þegar Víkingur tapaði fyrir KF 4-1 sem var í næstneðsta sætinu fyrir þann leik. Höttur/Huginn er í sjötta sæti með 27 stig og ljóst að hart verður barist á sunnudaginn.

Sætur sigur hjá Víkingi gegn Haukum - Skessuhorn