
Frú Agnes M Sigurðardóttir biskup blessar steininn og minningu Hallgríms og Guðríðar. Ljósmyndir: mm
Minningarsteinn um séra Hallgrím var afhjúpaður í Saurbæ
Síðdegis í gær fór fram athöfn í Hallgrímskirkju í Saurbæ og í kirkjugarðinum. Í ljósi tíðarfarsins í sumar voru gestir einstaklega heppnir því þennan dag var hlýtt og sólríkt á Hvalfjarðarströndinni. Blásið var til þessarar athafnar í tilefni af 350. ártíð sálmaskáldsins Hallgríms Péturssonar. Afhjúpaður var minningarsteinn um Hallgrím og Guðríði Símonardóttur eiginkonu hans á leiði Hallgríms. Letrið á gamla minningarsteininum var orðið útmáð og hefur honum verið komið fyrir í kirkjunni.