
Magnús Emanúelsson og Hrannar að landa afla dagsins. Ljósm. AF
Tók að sér matsveinsstarfið um borð 15 ára
Hrannar Kjartansson er 15 ára Ólafsvíkingur sem skellti sér á sjóinn í gær með feðgunum Magga Emma og Jóni Þór á línubátnum Rán SH. Hrannar er kominn af sjómannsfjölskyldu og því ekki ókunnur lífinu til sjós. Blíðuveður var og því örlaði ekki fyrir sjóveiki.