Meðfram hefðbundnu skólastarfi í FSN stendur undirbúningur í fullum gangi fyrir 20 ára afmæli skólans föstudaginn 30. ágúst. Á meðfylgjandi mynd má sjá nýja stjórn Nemendafélags Fjölbrautaskóla Snæfellinga ásamt skólameistara og námsráðgjafa. Stjórnin er eingöngu skipuð stúlkum í þetta skiptið. Ljósm. tfk

Afmælisár í Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði segir að 163 nemendur séu búnir að skrá sig til náms að þessu sinni. Af þeim eru 85 í fjarnámi, í Framhaldsdeild eru sjö nemendur og aðrir nemendur eru í staðnámi í Grundarfirði og þar af 31 nýnemi. „Eina breytingin á starfsmannahaldi var sú að einn starfsmaður lauk hér störfum vegna aldurs en alls eru 27 starfsmenn við skólann,“ segir Hrafnhildur.

Afmælisár í Fjölbrautaskóla Snæfellinga - Skessuhorn