Fréttir

true

Myndasyrpa frá vel heppnuðu unglingalandsmóti UMFÍ

Unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands var haldið í Borgarnesi um verslunarmannahelgina. Það hófst á fimmtudeginum, mótsetning var á föstudagskvöldinu en dagskrá lauk á sunnudagskvöldi. Þá var heilmikil tónleikadagskrá og glæsileg flugeldasýning í boði. Að sögn mótshaldara gekk allt vel fyrir utan sinueld sem kviknaði á sunnudagskvöldinu á flugeldasýningunni en var fljótt slökktur af Slökkviliði Borgarbyggðar. Mótið var…Lesa meira

true

Brekkan við Garðavöll stækkuð

Sleðabrekkan við Garðavöll á Akranesi hefur verið vinsæl á veturna í gegnum tíðina hjá krökkum á öllum aldri og hefur nú verið stækkuð. Brekkan sem í daglegu tali er kölluð Mikki Mús hóllinn var eitt af þeim sex verkefnum sem hlutu flest atkvæði í kosningu í hugmyndasamkeppni „Okkar Akranes – Græn svæði“ sem efnt var…Lesa meira

true

Frúargarðurinn á Hvanneyri var fegraður í sumar

Í sumar hefur öflugt teymi starfað á útisvæðum víða á Hvanneyri við umhverfisbætur. Þetta kemur fram á heimasíðu Landbúnaðarháskóla Íslands, LbhÍ. Nanna Vilborg Harðardóttir umsjónarmaður útisvæða hjá LbhÍ hefur leitt vinnuna. Nanna er landslagsarkitekt og lauk grunnnámi við skólann áður en hún hélt til Þýskalands í framhaldsnám. Í teymi hennar í sumar störfuðu Fabrizio Albion…Lesa meira

true

Trúbadorinn veiddi Maríulaxinn í Klapparhyl

„Ég var að veiða maríulaxinn minn í Klapparhylnum í Staðarhólsá í Dölum – og það var skemmtilegt,“ sagði Trúbador Ásgeir Kr í samtali við Skessuhorn. Hvolsá og Staðarhólsá í Dölum hafa gefið um hundrað laxa og mikið er af bleikju. Vatn er gott í ánum þessa dagana eins og víða á svæðinu eftir votviðrasamt sumar.…Lesa meira

true

Golfklúbburinn Leynir fékk silfur á Íslandsmóti 65 ára og eldri

Í gær lauk tveggja daga Íslandsmóti karla í golfi í flokki 65 ára og eldri í 2. deild. Keppt var í Hveragerði. Golfklúbburinn Leynir frá Akranesi sendi öflugt lið til leiks sem skipað var þeim Birni Þórhallssyni, Halldóri B. Hallgrímssyni, Matthíasi Þorsteinssyni, Þórði Elíassyni, sem einnig var liðsstjóri, Sigurði Grétari Davíðssyni og Hinriki Á. Bóassyni.…Lesa meira

true

Hjólað var um Borgarfjörð í Greflinum

Grefilinn, hjólreiðakeppni á malarvegum og stígum, var haldin síðastliðinn laugardag. Hjólreiðadeild Breiðabliks heldur keppnina en þetta var í fjórða sinn sem hún fór fram. Hátt í 180 manns voru skráðir til leiks en keppt var í þremur vegalengdum; 200 km, 100 km og 45 km. Milt og gott verður var í Borgarfirði meðan keppnin fór…Lesa meira

true

Við erum svakalega lausnamiðuð hérna í skólanum

Rætt við Þóru Margréti Birgisdóttur skólastjóra Grunnskóla Stykkishólms Þóra Margrét Birgisdóttir er að hefja sitt fyrsta ár sem skólastjóri Grunnskóla Stykkishólms. „Ég ætlaði að koma og prófa að vera út á landi í eitt ár en það eru liðin 15 ár síðan. Þannig að þú getur nú reiknað,“ segir Þóra og hlær, þegar hún sest…Lesa meira

true

Atvinnuþátttaka aldrei mælst meiri

Helstu niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands fyrir annan ársfjórðung 2024 sýna að atvinnuþátttaka fólks, á aldrinum 16 til 74 ára, hefur aldrei mælst meiri frá því samfelld mæling hófst árið 2003. Atvinnuþátttakan mældist 83,6% og þarf að leita aftur til ársins 2016 til finna sambærilega mælingu. Er þetta 1,7 prósentustigi hærra hlutfall en á sama ársfjórðungi…Lesa meira

true

Kjörbúðin lækkar verð á matvöru

„Í síðustu viku lækkaði verð á 640 vörum í verslunum Kjörbúðanna og nemur lækkunin í mörgum tilfellum tugum prósenta frá fyrra verði,“ segir í tilkynningu frá Samkaupum. „Ákveðið var að fjölga þeim vörum sem merktar eru sérstaklega með grænum punkti, en það eru vörur sem seldar eru á verði sambærilegu við það sem býðst í…Lesa meira

true

Áhugi frá víkingum kveikjan að langboganum

Rætt við Patrek Hall Einarsson Norðurlandameistara í bogfimi Patrek Hall Einarsson tók þátt í Norðurlandamóti ungmenna í bogfimi en mótið var haldið í Óðinsvéum í Danmörku helgina 3-8. júlí í sumar. Patrek æfir hjá Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi en hann kynntist íþróttinni fyrir nokkrum árum. „Ég byrjaði snemma árs 2021 en ég sá myndband um…Lesa meira