Kyndilberar við upphaf mótsins. Heimafólkið Kristín Eir Holaker Hauksdóttir hestaíþróttakona og Sindri Karl Sigurjónsson hlaupari halda á kyndlinum. Ljósm. tfk

Myndasyrpa frá vel heppnuðu unglingalandsmóti UMFÍ

Unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands var haldið í Borgarnesi um verslunarmannahelgina. Það hófst á fimmtudeginum, mótsetning var á föstudagskvöldinu en dagskrá lauk á sunnudagskvöldi. Þá var heilmikil tónleikadagskrá og glæsileg flugeldasýning í boði. Að sögn mótshaldara gekk allt vel fyrir utan sinueld sem kviknaði á sunnudagskvöldinu á flugeldasýningunni en var fljótt slökktur af Slökkviliði Borgarbyggðar. Mótið var vel sótt, um eitt þúsund þátttakendur voru skráðir til leiks og nokkur þúsund manns dvöldu í bænum yfir helgina. Gríðarlegur fjöldi sjálfboðaliða tók þátt í mótinu, víða úr Borgarfirði.

Myndasyrpa frá vel heppnuðu unglingalandsmóti UMFÍ - Skessuhorn