Komin er ný mynd á Mikka Mús hólinn. Ljósm. vaks

Brekkan við Garðavöll stækkuð

Sleðabrekkan við Garðavöll á Akranesi hefur verið vinsæl á veturna í gegnum tíðina hjá krökkum á öllum aldri og hefur nú verið stækkuð. Brekkan sem í daglegu tali er kölluð Mikki Mús hóllinn var eitt af þeim sex verkefnum sem hlutu flest atkvæði í kosningu í hugmyndasamkeppni „Okkar Akranes – Græn svæði“ sem efnt var til á síðasta ári. Þá hafa óskir um stærri sleðabrekku einnig komið skýrt fram á barna- og ungmennaþingi Akraneskaupstaðar og því ánægjulegt að sjá hana verða að veruleika.

Brekkan við Garðavöll stækkuð - Skessuhorn