Atvinnuþátttaka aldrei mælst meiri

Helstu niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands fyrir annan ársfjórðung 2024 sýna að atvinnuþátttaka fólks, á aldrinum 16 til 74 ára, hefur aldrei mælst meiri frá því samfelld mæling hófst árið 2003. Atvinnuþátttakan mældist 83,6% og þarf að leita aftur til ársins 2016 til finna sambærilega mælingu. Er þetta 1,7 prósentustigi hærra hlutfall en á sama ársfjórðungi á síðasta ári. Fjöldi fólks á aldrinum 16 til 74 ára sem var á vinnumarkaði á öðrum ársfjórðungi 2024 var 241.600 manns. Konur voru 109.600 eða 79,6% atvinnuþátttaka og karlar voru 132.000 eða 87,3% atvinnuþátttaka.

Atvinnuþátttaka aldrei mælst meiri - Skessuhorn