
Kristín Gunnarsdóttir framan við eina Kjörbúðina. Ljósm. aðsend
Kjörbúðin lækkar verð á matvöru
„Í síðustu viku lækkaði verð á 640 vörum í verslunum Kjörbúðanna og nemur lækkunin í mörgum tilfellum tugum prósenta frá fyrra verði,“ segir í tilkynningu frá Samkaupum. „Ákveðið var að fjölga þeim vörum sem merktar eru sérstaklega með grænum punkti, en það eru vörur sem seldar eru á verði sambærilegu við það sem býðst í lágvöruverðsverslunum. Markmiðið með rekstri Kjörbúðarinnar er alltaf að bjóða viðskiptavinum okkar upp á vöruúrval, þjónustu og verð sem mætir þeirra þörfum og kröfum. Við reynum því eftir fremsta megni að bjóða upp á fjölbreytt vöruúrval á breiðu verðbili og vera með samkeppnishæf verð,“ segir Kristín Gunnarsdóttir, rekstrarstjóri Krambúða og Kjörbúða hjá Samkaupum.