
Hluti teymisins: Nanna Bilborg til vinstri, Gabriel, Helga Rán og Fabrizio. Ljósmyndir: LbhÍ
Frúargarðurinn á Hvanneyri var fegraður í sumar
Í sumar hefur öflugt teymi starfað á útisvæðum víða á Hvanneyri við umhverfisbætur. Þetta kemur fram á heimasíðu Landbúnaðarháskóla Íslands, LbhÍ. Nanna Vilborg Harðardóttir umsjónarmaður útisvæða hjá LbhÍ hefur leitt vinnuna. Nanna er landslagsarkitekt og lauk grunnnámi við skólann áður en hún hélt til Þýskalands í framhaldsnám. Í teymi hennar í sumar störfuðu Fabrizio Albion landslagsarkitekt, Gabriel Ravasz skógfræðingur ásamt Helgu Rán Sigurðardóttur og Ara Kristni Gunnarssyni nemum í landslagsarkitektúr auk Marinó Muggs Þorbjarnasonar náttúru- og umhverfisfræðings.