Fréttir

true

Hjólað var um Borgarfjörð í Greflinum

Grefilinn, hjólreiðakeppni á malarvegum og stígum, var haldin síðastliðinn laugardag. Hjólreiðadeild Breiðabliks heldur keppnina en þetta var í fjórða sinn sem hún fór fram. Hátt í 180 manns voru skráðir til leiks en keppt var í þremur vegalengdum; 200 km, 100 km og 45 km. Milt og gott verður var í Borgarfirði meðan keppnin fór…Lesa meira

true

Við erum svakalega lausnamiðuð hérna í skólanum

Rætt við Þóru Margréti Birgisdóttur skólastjóra Grunnskóla Stykkishólms Þóra Margrét Birgisdóttir er að hefja sitt fyrsta ár sem skólastjóri Grunnskóla Stykkishólms. „Ég ætlaði að koma og prófa að vera út á landi í eitt ár en það eru liðin 15 ár síðan. Þannig að þú getur nú reiknað,“ segir Þóra og hlær, þegar hún sest…Lesa meira

true

Atvinnuþátttaka aldrei mælst meiri

Helstu niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands fyrir annan ársfjórðung 2024 sýna að atvinnuþátttaka fólks, á aldrinum 16 til 74 ára, hefur aldrei mælst meiri frá því samfelld mæling hófst árið 2003. Atvinnuþátttakan mældist 83,6% og þarf að leita aftur til ársins 2016 til finna sambærilega mælingu. Er þetta 1,7 prósentustigi hærra hlutfall en á sama ársfjórðungi…Lesa meira

true

Kjörbúðin lækkar verð á matvöru

„Í síðustu viku lækkaði verð á 640 vörum í verslunum Kjörbúðanna og nemur lækkunin í mörgum tilfellum tugum prósenta frá fyrra verði,“ segir í tilkynningu frá Samkaupum. „Ákveðið var að fjölga þeim vörum sem merktar eru sérstaklega með grænum punkti, en það eru vörur sem seldar eru á verði sambærilegu við það sem býðst í…Lesa meira

true

Áhugi frá víkingum kveikjan að langboganum

Rætt við Patrek Hall Einarsson Norðurlandameistara í bogfimi Patrek Hall Einarsson tók þátt í Norðurlandamóti ungmenna í bogfimi en mótið var haldið í Óðinsvéum í Danmörku helgina 3-8. júlí í sumar. Patrek æfir hjá Bogfimifélaginu Boganum í Kópavogi en hann kynntist íþróttinni fyrir nokkrum árum. „Ég byrjaði snemma árs 2021 en ég sá myndband um…Lesa meira

true

Aðlögunarhæfni kennara er ótrúleg

Rætt við Guðlaugu Erlendsdóttur nýjan skólastjóra Grunnskóla Borgarness Guðlaug Erlendsdóttir tók á mánudaginn á móti blaðamanni í húsakynnum Grunnskóla Borgarness. Guðlaug tók í byrjun mánaðarins formlega til starfa sem skólastjóri en hún hefur góða reynslu af stjórnun og kennslu. Hún er með M.ed í stjórnun menntastofnana frá HÍ, MA í félagsfræði frá sama skóla og…Lesa meira

true

Fornbílar væntanlegir á Akranes á laugardaginn

Fornbílaklúbbur Íslands undirbýr nú dagsferð frá Reykjavík á Akranes laugardaginn 17. ágúst. Félagarnir heimsækja m.a. tvö söfn á Akranesi kl. 13 og 15. Klukkan 17 borða gestirnir saman en eftir það verður heimferð. Milli heimsókna á söfnin má búast við að fornbílum verði ekið um Akranes íbúum til ánægju.Lesa meira

true

Var bara alltaf Kristín sterka og það var ekkert tiltökumál

Rætt við Kristínu Gísladóttur, skólastjóra leikskólans Uglukletts í Borgarnesi Blaðamanni var boðið í heimsókn á heimili Kristínar Gísladóttur og Kristins Óskars Sigmundssonar, sem oftar en ekki er kallaður Kiddó. Boðið var upp á uppáhellt kaffi og með því; vínarbrauð með gulum glassúr. Þau hjónin voru glaðleg þegar blaðamann bar að garði, en nefndu að hann…Lesa meira

true

Kynntu umhverfismatsskýrslu fyrir vindorkuver á Sólheimum

Í gærkvöldi var haldinn kynningarfundur um umhverfismatsskýrslu og fyrirhugaða framkvæmd vindorkuvers á Sólheimum í Laxárdal í Dölum. Á fundinum í Dalabúð kynntu fulltrúar Qair Iceland umhverfismatsskýrsluna. Allir geta kynnt sér skýrsluna sem er býsna yfirgripsmikil og löng og í framhaldi lestursins veitt umsögn um framkvæmdina og umhverfismat hennar. Frestur til þess er til og með…Lesa meira

true

Sonja Lind í starf aðstoðarmanns heilbrigðisráðherra

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ráðið Sonju Lind Estrajher Eyglóardóttur sem aðstoðarmann sinn. Hún hefur störf í vikunni. „Sonja er með meistara- og BA-próf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og fékk viðurkenningu fyrir bestan námsárangur við útskrift úr BA-námi. Áður hafði hún lokið námi í grafískri miðlun frá Iðnskólanum í Reykjavík. Síðustu fjögur ár…Lesa meira