
Á þessu korti má sjá hversu víða vindmylluspaðarnir á Sólheimum munu sjást (blálitað svæði). Sjálft framkvæmdasvæðið fyrir miðri mynd. Kort: Skipulagsstofnun/Qair
Kynntu umhverfismatsskýrslu fyrir vindorkuver á Sólheimum
Í gærkvöldi var haldinn kynningarfundur um umhverfismatsskýrslu og fyrirhugaða framkvæmd vindorkuvers á Sólheimum í Laxárdal í Dölum. Á fundinum í Dalabúð kynntu fulltrúar Qair Iceland umhverfismatsskýrsluna. Allir geta kynnt sér skýrsluna sem er býsna yfirgripsmikil og löng og í framhaldi lestursins veitt umsögn um framkvæmdina og umhverfismat hennar. Frestur til þess er til og með 3. september nk.