Sonju Lind Estrajher Eyglóardóttir

Sonja Lind í starf aðstoðarmanns heilbrigðisráðherra

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ráðið Sonju Lind Estrajher Eyglóardóttur sem aðstoðarmann sinn. Hún hefur störf í vikunni. „Sonja er með meistara- og BA-próf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og fékk viðurkenningu fyrir bestan námsárangur við útskrift úr BA-námi. Áður hafði hún lokið námi í grafískri miðlun frá Iðnskólanum í Reykjavík. Síðustu fjögur ár hefur Sonja starfað sem starfsmaður og verkefnastjóri þingflokks Framsóknar á Alþingi og hefur þar komið að gerð fjölda þingmannamála tengdum heilbrigðis- og lýðheilsumálum ásamt því að aðstoða þingmenn við vinnslu mála fyrir nefndum Alþingis. Áður starfaði Sonja sem verkefnastjóri hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi.“

Sonja Lind í starf aðstoðarmanns heilbrigðisráðherra - Skessuhorn