
Á Hvalfjarðardögum um næstu helgi verða síðustu tónleikar sumarsins í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Þýski stúlknakórinn Pfälzische Kurrende frá Neustadt/Weinstrasse er á tónleikaferð um Ísland 14.-18. ágúst. Kórinn er margverðlaunaður bæði í heimalandi sínu og í Evrópu. Kórinn syngur í Hallgrímskirkju sunnudaginn 18. ágúst kl. 16.00. Stjórnandi kórsins er Carola Bischoff og organisti er Simon Reichert.…Lesa meira








