Eggert og Ingimar Elí. Ljósm. kfía

Nýr framkvæmdastjóri hjá KFÍA

Eyjólfur Vilberg Gunnarsson framkvæmdastjóri hjá Knattspyrnufélagi ÍA, hefur sagt starfi sínu lausu vegna flutninga erlendis í lok tímabils. Þetta kemur fram í tilkynningu á FB síðu ÍA. Nýr framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn til félagsins, Ingimar Elí Hlynsson. Ingimar Elí kemur frá Icelandair þar sem hann hefur starfað sem sölustjóri. Hann hefur lokið BS námi í sálfræði og viðskiptafræði með áherslu á mannauðsstjórnun. Ingimar Elí þekkir félagið vel en hann hefur m.a. starfað sem leikmaður, þjálfari, setið í aðalstjórn og tók við hlutverki formanns barna- og unglingaráðs nú í vor. Ingimar Elí mun hefja störf hjá félaginu þann 1. desember þegar störfum hans lýkur hjá núverandi vinnuveitanda.

Nýr framkvæmdastjóri hjá KFÍA - Skessuhorn