
Jörgen Olsen, annar Olsen bræðranna, mun halda tónleika við Stykkishólmshöfn. Ljósm. stykkisholmur.is
Hólmarar fagna 30 ára afmæli Danskra daga
Skipuleggjendur bæjarhátíðarinnar Danskra daga í Stykkishólmi eru nú að leggja lokahönd á dagskrá hátíðarinnar í ár. Fyrsta hátíð Danskra daga var haldin árið 1994 og á hún því afmæli núna. Hátíðin í ár mun að mestu leyti höfða til íbúa Stykkishólms, brottfluttra íbúa og fjölskyldna. „Við sjáum þessa hátíð fyrir okkur þannig. Að íbúar geti komið saman og notið þess að skemmta sér og sínum, en að sjálfsögðu eru allir velkomnir,“ segir Kristjón Daðason, einn skipuleggjenda hátíðarinnar í ár í samtali við Skessuhorn.